fimmtudagur, janúar 29, 2009

Sonur virðist vera komin á hápunkt þess aldursskeiðs sem einkennist af því að segja eitthvað óviðeigandi. Eða ég vona amk að þetta sé hápunkturinn.
Að fara í sund til dæmis er stundum dálítið vandræðalega fyndið. Oft vona ég bara að fólk skilji ekki óskýrmælta barnið mitt.
Hann benti til dæmis á mann sem var að fikra sig ofan í heita pottinn og tilkynnti mér að þessi væri nú með alveg ægilega stóran maga, ég sagði bara já já og reyndi að eyða umræðuefninu. Ekki tókst það betur en svo að eftir smá stund spurði barnið hvort þessi maður (bent með vísifingri) væri með barni í þessum risastóra maga.
Eftir sundferðina fórum við í sturtu eins og lög gera ráð fyrir. Eftir smástund leit sonur á mig og hálf æpti: Mamma! Þú ert að pissa í sturtuna!
Sem betur fer var engin þarna nema ein kona sem brosti bara huggulega á meðan ég útskýrði fyrir barninu að ég hefði nú aldeilis ekki verið að pissa í sturtuna.
Við erum búin að mæta saman á nokkur mótmæli og nú sönglar hann stundum "vanfrla vikrisvs" og lemur í pott. Þó orðin skiljist ekki þá fer tónfallið ekkert á milli mála. Honum finnst þetta vera einhvers konar hvatningaróp því í morgun sat hann hér útí glugga með málmbox sem hann barði í og kallaði - upp flugvél.

6 ummæli:

Gríshildur sagði...

:) :)

ThP sagði...

ég er búnað lesa þrisvar og hlægja upphátt alltaf!

Nafnlaus sagði...

Sama hér!

hilda sagði...

drengurinn er náttúrulega snillingur;) hitti hann á ganginum í hádeginu...agalega röffaður í náttfötunum að keyra bíl...spjallaði aðeins við hann og sagði honum að hann væri töff svona á náttfötunum...hann var agalega ánægður með það og sagði mér að það væri best að vera á náttfötum....svo þegar ég fór þá sá ég 2 sár á andlitinu hans...mér fannst þau einhvern veginn einkennandi fyrir hann...;)

Nafnlaus sagði...

ó guð hvað þetta vakti gleði mína á ný að lesa þetta:)

En eftir mótmælin fyrir um 2 vikum síðan hefur saga verið að berja í hluti og kalla: "vanhæf ríkisstjórn".. og eins og hjörtur, þá talar hún ekkert sérstakalega skýrt svo þetta kemur út sem "vali risito" en tónninn fer svo sannarlega ekki á milli mála:D

-7fn

Nafnlaus sagði...

Hahaha snillingur :)