sunnudagur, nóvember 30, 2003

jæja já.... ég eyddi stórum parti dagsins í gær í að reyna að upphugsa eitthvað annað að gera en að læra, eftir mikil heilabrot datt ég niður á hina fullkomnu lausn. Ég ákvað að bjóða vinum mínum í mat og jafnvel bjór á eftir :) Eftir það varð ekki aftur snúið ég rauk útí búð og verslaði eins og ég ætti lífið að leysa.... eldaði svo stórfínan mat. Við átum á okkur gat og settumst svo að drykkju og allir glaðir og kátir. Ég ákvað síðan að fara með systir minni í afmæli til frænku minnar en því miður mættum við 10 mín of seint á Gaukinn og það var ekki séns að komast inn því það var farið að rukka 1500 KRÓNUR inn vegna þess að það var að byrja ball með SÁLINNI... ég skil ekki að nokkur maður borgi 1500 til að horfa/hlusta á SÁLINA þegar það er kostur á því að fara á marga aðra bari sem kostar ekkert inná og bjórinn er jafnvel ódýrari en á Gauknum. En allavega ég ákvað að kyssa bara afmælisbarnið og fara svo að hitta vini mína og drekka meiri bjór. Ég gerð heiðarlega tilraun til að fara marga mismunandi bari en auðvitað endaði ég bara á Sirkus ... því miður var eignlega ekkert gaman þar þannig að ég arkaði bara heim kom þangað seint og um síðir loppin og köld og komin með nýtt samviskubit, búin að eyða of mikið af peningum í ekki neitt en jæja svona er þetta ... nú er komin nýr dagur og ég ætla ekki að eyða peningum í vitleysu í dag.

laugardagur, nóvember 29, 2003

Laugardagur til lukku... mér finnst þessi dagur ekkert sérstaklega lukkulegur, vindur úti og ónytjungsháttur inni. Of mikið af hlutum sem þarf að gera þannig að það liggur beinast við að gera bara ekki neitt... þá fæ ég ekki samviskubit yfir því að vera að gera eitthvað sem ég á ekki að vera að gera. Já þetta er gott plan.

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

jæja þá er dómsdagur runnin upp.... Vaktaplan fyrir jólin hefur litið dagsins ljós og viti menn Marta Smarta nýtur þeirra forréttinda að vera að vinna á aðfangadagskvöld, ef það er einhvern tíma þörf fyrir Pollýönnuleik þá er það núna .. hver er ljósi punkturinn við að vera að vinna???? hmmmm......... ég þarf ekki að vinna á gamlárskvöld, það er nú fínt. Ég þarf ekki heldur að vinna jóladag sem er líka ágætt.... ef ég verð að vinna hér enn eftir ár þá þarf ég ekki að vinna aðfangadagskvöld þá, sagði ekki einhver að illu væri best aflokið? Já jæja ohhh en ó well það gæti verið verra ég meina ég er allavega ekki að vinna í álveri eða í miðasölunni í Hvalfjarðargöngunum já ég get verið glöð yfir því ... sko Pollýanna hefur nokkuð til síns máls.
Jæja já það er nú um að gera að finna sér eitthvað annað að gera en að læra. Tími til komin að tengjast nútímanum og reyna að gera eitthvað fyrst að tæknin er nú komin í þetta hús ... annars er ágætis veður hér í vesturbænum.... og allir sem ég þekki eru syngjandi hvort sem það fer inn eða út....